Samtök skattgreiðenda
EN
Óháð samtök fjármögnuð af frjálsum framlögum einkaaðilaStyrkja samtökin

Samtök skattgreiðenda

Grasrótarsamtök sem berjast fyrir gagnsæi í ríkisfjármálum, lægri sköttum og ábyrgri stjórnun opinbers fjár.

Efst á baugi

17M+reikningar í opnum reikningum ríkisins
98%birgja ríkisins ÍSAT-flokkaðir
25þættir í Skattaspjallinu á Spotify
2,3Mfjárlagalínur í ríkisreikningi (2004–2025)

Fréttir og nýtt

Allar fréttir →
Fréttir

Skattaspjallið: Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti?

Samtök skattgreiðenda hafa sent Fjársýslunni og Fjármálaráðuneytinu erindi þar sem samtökin bjóðast til þess að taka að sér að birta öll opinber gögn um allar greiðslur hins opinbera, skattgreiðendum að kostnaðarlausu. Þetta gerist um leið og annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda hefur verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna [...]

Fréttir

Nýtt viðmót fyrir opna reikninga ríkisins

Nú hefur annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna reikninga ríkisins (opnirreikningar.is). Opnir reikningar ríkisins voru opnaðir þann 11. september 2017. Að því tilefni var skrifuð frétt á vef Stjórnarráðs Íslands þar sem segir m.a.: Opnum reikningum er ætlað að veita einfalda og skýra [...]

Fréttir

Skattaspjallið: Hagræðing og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis

Hver heldur hagsmunum skattgreiðenda á lofti í sölum Alþingis þegar flestir flokkar styðja aukna útþenslu ríkisins og skattahækkanir? Fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna en ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur [...]

Fréttir

Skattaspjallið: Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði?

Samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og annarra opinberra stuðningskerfa er flókið og verður í raun stöðugt flóknara. Yfirsýn er því lítil og um margt skortir heildstæða gagnasöfnun sem varð til þess að sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, þeir Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hafa tekið saman mikið yfirlit um það hvort að Íslendingar hafi yfirhöfuð efni á að vera [...]

Fréttir

Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði?

Samantekt Inngangur Í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 23. desember sl. vöktu tveir stjórnarmenn í Samtökum skattgreiðenda, ásamt Dr. Kristni Sv. Helgasyni, athygli á mikilli aukningu á örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum á Íslandi, einkum meðal kvenna þar sem hlutfallið er nú komið upp í um 23% af fjölda starfandi kvenna á vinnumarkaði á aldrinum 18-67 [...]

Fréttir

Skattaspjallið: Peningar skattgreiðenda út í loftið

Tekjur af sköttum tengdum loftslagsmálum aukast jafnt og þétt, bæði hér á landi og í Evrópusambandinu. Í haust fékk þingmaðurinn Karl Gauti Hjaltason svar við fyrirspurn þar sem hann spurði um þá fjármuni sem veitt er til loftslagsmála árlega. Svarið sem Karl Gauti fékk var á margan hátt ófullnægjandi en þó eru ýmsar tölur þar [...]

Skattaspjallið

Allir þættir á Spotify →

Hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda — fjallað um skattamál, ríkisútgjöld og opinber fjármál. Stjórnandi: Sigurður Már Jónsson.

SpotifyApple Podcasts
#25
Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti?
Arnar Arinbjarnarson · 18. mars 2026
Hlusta á Spotify
#24
Hagræðing og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir · 4. mars 2026
Hlusta á Spotify
#23
Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði?
Arnar Arinbjarnarson, Róbert Bragason · 18. febrúar 2026
Hlusta á Spotify
#22
Peningar skattgreiðenda út í loftið
Karl Gauti Hjaltason · 4. febrúar 2026
Hlusta á Spotify
#21
Hættumerki í velferðarkerfinu
Arnar Arinbjarnarson, Róbert Bragason · 21. janúar 2026
Hlusta á Spotify

Gögn og greining

Gagnvirk mælaborð og greiningar byggðar á opinberum gögnum — skoðaðu hvert peningarnir fara.

Opnir reikningar ríkisins

17M+ reikningar

17 milljón greiðslur — leitaðu eftir stofnun, birgja, tegund og ÍSAT-flokkun.

Ríkisreikningur 2004-2026

2,5M færslur · 2004-2026

Gjöld, tekjur og afkoma ríkissjóðs eftir málefnasviðum, stofnunum og tegundum - verðlagsleiðrétt, á íbúa og % af VLF. Fjárlög vs rauntölur.

Hvaðan koma peningarnir - hvert fara þeir?

Fjárlög 2017-2027 · 495 viðföng

Peningatré ríkissjóðs: tekjur eftir skattstofnum og gjöld eftir málefnasviðum í fjárlögum 2017-2027, borin saman við ríkisreikning. Smelltu á hvern lið.

Kvittunin - hvert fara skattarnir þínir?

Ríkisreikningur 2025 · 62 sveitarfélög

Sláðu inn mánaðarlaun og veldu sveitarfélag: Kassakvittun fyrir skattana þína, skipt eftir ríkisreikningi 2025 og ársreikningi sveitarfélagsins - eftir málefnasviðum og tegund útgjalda.

Opnir reikningar sveitarfélaga

1M+ reikningar

Greiðslur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til birgja — ÍSAT-flokkað.

Óháð samtök fjármögnuð af frjálsum framlögum einkaaðila

Hjálpaðu okkur að halda vaktinni

Samtök skattgreiðenda eru grasrótarsamtök rekin að mestu í sjálfboðaliðavinnu. Starfsemin er fjármögnuð af mánaðarlegum styrktaraðilum — einstaklingum og fyrirtækjum sem telja gagnsæi og ábyrga fjármálastjórnun mikilvæga.

Eða hafðu samband: upplysingar@skattgreidendur.is

Um samtökin

Samtök skattgreiðenda voru stofnuð 16. apríl 2012. Samtökin berjast fyrir gagnsæi, lægri sköttum og ábyrgri meðferð opinbers fjár. Samtökin gera greiningar á rekstri hins opinbera, leggja fyrirspurnir fyrir stjórnvöld og vekja athygli á málstað skattgreiðenda.

Stjórn

SH
Skafti Harðarson
Stjórnarformaður
AA
Arnar Arinbjarnarson
Stjórnarmaður
RB
Róbert Bragason
Stjórnarmaður

upplysingar@skattgreidendur.is

Fáðu fréttir á tölvupóst

Engin gjöld. Engar kvaðir. Afskráning hvenær sem er.